Tækifæri barna til áhrifa hafa aukist í barnvænu sveitarfélagi
Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í starfsemi Kópavogsbæjar hefur haft í för með sér ýmis ný tækifæri fyrir börn í sveitarfélaginu til að hafa áhrif. Barnasáttmálinn fagnar afmæli í dag, 20.nóvember en fimm ár eru síðan Kópavogur fékk fyrst viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag.

Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í starfsemi Kópavogsbæjar hefur haft í för með sér ýmis ný tækifæri fyrir börn í sveitarfélaginu til að hafa áhrif. Barnasáttmálinn fagnar afmæli í dag, 20.nóvember en fimm ár eru síðan Kópavogur fékk fyrst viðurkenningu sem barnvænt sveitarfélag.
Unnið hefur verið að því frá árinu 2018 markvisst að því að innleiða Barnasáttmálann í stjórnsýslu og starfsemi bæjarins.
„Það skiptir okkur máli að börn í Kópavogi upplifi að þau séu fullgildir þátttakendur í samfélaginu og að rödd þeirra hafi vægi. Að vera Barnvænt sveitarfélag felur í sér að við horfum á ákvarðanir okkar með réttindi og hagsmuni barna að leiðarljósi. Við höfum náð mikilvægum áföngum en verkefninu lýkur aldrei. Við þurfum stöðugt að hlusta á börnin okkar og þróa Kópavog áfram með þeim,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.
Árangur verkefnisins birtist hvað skýrast þegar horft er á þau tækifæri sem börn í Kópavogi hafa fengið til þess að hafa áhrif.
- Okkar skóli: Verkefnið hefur verið innleitt í leik- og grunnskólum Kópavogs og þar ákveða börnin með lýðræðislegum hætti hvernig fjármunum er ráðstafað í þeirra skólaumhverfi. Við endurnýjun viðurkenningarinnar árið 2024 nam fjármagnið 1.000 krónum á hvert barn. Hugmyndir barnanna hafa meðal annars snúið að bættri aðstöðu, leikföngum, fræðslu og tækjabúnaði.
- Barnaþing Kópavogs: Þar koma saman fulltrúar barna úr grunnskólum bæjarins og ungmennaráði í kjölfar skólaþinga. Tillögum er forgangsraðað og þær hugmyndir sem börnin sjálf velja sem mikilvægastar eru að lokum kynntar fyrir bæjarstjórn.
- Skipulagsmál: Börn hafa einnig fengið aukið hlutverk í samráði um skipulagsmál og unnið hefur verið sérstaklega að samráði við börn í tengslum við endurnýjun skólalóða og annað sem snýr að skólaumhverfi barna.
- Mælaborð barna: Með mælaborði barna hafa gögn um heilsu og líðan barna jafnframt verið færð nær ákvarðanatöku sveitarfélagsins. Þannig er hægt að nýta gögn við stefnumótun og ákvarðanir og beina sjónum sérstaklega að stöðu og velferð barna.
- Réttindaskólar: Stór hluti leik- og grunnskóla hafa fengið viðurkenningu og eða eru að innleiða verkefnið Réttindaskóli UNICEF þar sem meðal annars lögð áhersla á þekkingu barna á eigin réttindum, lýðræðislega þátttöku og að forsendur Barnasáttmálans verði hluti af daglegu skóla- og frístundastarfi. Kópavogur hefur verið brautryðjandi á þessu sviði en leikskólar í Kópavogi voru þeir fyrstu í heiminum til að verða Réttindaskólar UNICEF.
„Það sem mér finnst einna mikilvægast við þessa vegferð er að við erum farin frá því að spyrja eingöngu hvað við getum gert fyrir börn yfir í að spyrja börnin sjálf hvað skiptir þau máli. Verkefni eins og Barnaþing, Okkar skóli og samráð við börn sýna að þátttakan getur leitt til raunverulegra breytinga. Næsta skref er að festa þessa hugsun enn betur í öllu okkar starfi, þannig að það verði sjálfsagður hluti af ákvarðanatöku að spyrja: Hvaða áhrif hefur þetta á börn og höfum við heyrt þeirra sjónarmið? En kannski er mikilvægasti lærdómurinn af vegferðinni sá að sveitarfélag verður aldrei endanlega „búið“ að vera barnvænt. Ný börn vaxa úr grasi, samfélagið breytist og nýjar áskoranir verða til. Verkefnið kallar því á stöðugt samtal: að spyrja, hlusta, mæla árangur og bregðast við, “ segir Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri og umsjónarmaður verkefnisins Barnvænt sveitarfélag hjá Kópavogsbæ.
Þess má geta að lokum að um þessar mundir er unnið að því að færa barnaréttindanálgun enn betur inn í stjórnsýslu og þjónustu bæjarins, auka þekkingu á réttindum barna og styrkja leiðir barna til þátttöku. Áherslan færist þannig í auknum mæli frá einstökum verkefnum yfir í það að barnaréttindi verði eðlilegur og sjálfsagður hluti af því hvernig Kópavogsbær vinnur.


