Bæjarstjórn í sumarfrí
Síðasti fundur bæjarstjórnar Kópavogs fyrir sumarfrí var þriðjudaginn 27. júní síðastliðinn. Sumarfríi lýkur 14. ágúst og fyrsti fundur eftir sumarfrí verð

Síðasti fundur bæjarstjórnar Kópavogs fyrir sumarfrí var þriðjudaginn 27. júní síðastliðinn. Sumarfríi lýkur 14. ágúst og fyrsti fundur eftir sumarfrí verður haldinn þriðjudaginn 27.ágúst.
Á meðan bæjarstjórn er í sumarfríi er bæjarráði falið umboð bæjarstjórnar. Fundir bæjarráðs í júlí verða 4.júlí og 18.júlí.
Að jafnaði fundar bæjarstjórn Kópavogs annan og fjórða þriðjudag hvers mánaðar. Frá ágúst 2023 til júníloka 2024 fundaði bæjarstjórn í 21 skipti. Nýafstaðinn fundur var 1302 fundur bæjarstjórnar Kópavogs.
Fundargerði r og upptökur af fundum bæjarstjórnar eru aðgengilegar á vef bæjarins.


