Bæjartréið er úr Guðmundarlundi
Jólatré Kópavogsbæjar kemur að þessu sinni úr Guðmundarlundi.

Jólatré Kópavogsbæjar kemur að þessu sinni úr Guðmundarlundi. Um er að ræða 10 metra hátt sitkagreni. Tendrað verður á trénu klukkan 16.00 á Aðventuhátíð Kópavogs 2.desember .
Flest jólatréin sem notuð eru til skreytinga í ár koma frá Skógræktarfélagi Kópavogs, í Guðmundarlundi eða frá Fossá í Kjós. Þá eru þrjú til fjögur tré úr görðum íbúa.


