Beint í efni
Til baka í yfirlit

Bættar göngu­teng­ingar Lind­ar­vegar og Ála­lindar

Framkvæmdir við að bæta göngutengingu Lindarvegar og Álalindar við undirgöng undir Lindarveg eru hafnar.

Framkvæmdir við að bæta göngutengingu Lindarvegar og Álalindar við undirgöng undir Lindarveg eru hafnar. Útbúnar verða tvær stígtengingar, annarsvegar við gatnamót Álalindar og Lindarvegar niður að undirgöngum og hins vegar frá Lindarvegi að undirgöngum. Samhliða verður gangbraut yfir Lindarveg lögð af og gangandi umferð beint um undirgöngin. Tilgangur með framkvæmdinni er að auðvelda óvörðum vegfarendum að nota undirgöngin til að komast yfir Lindarveg og þar með auka öryggi þeirra. Seinna í sumar verður sett upphækkuð gangbraut við gatnamót Askalindar og Lindarvegar til að lækka umferðarhraða sem hefur verið of hár og bæta öryggi þeirra sem þvera Lindarveg við Funa- og Askalind.

Áætluð verklok eru í lok júlí.