Beint í efni
Til baka í yfirlit

Bóka­box slær í gegn

Bókasafn Kópavogs opnaði nýverið Bókabox í Vallarkór 4. Mótttökurnar hafa verið afar góðar.

Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs og Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menni…
Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs og Soffía Karlsdóttir forstöðumaður menningarmála.

Bókasafn Kópavogs opnaði nýverið Bókabox í Vallarkór 4. Bókaboxið, sem er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi, verið notað afar mikið frá opnun þess í upphafi októbermánaðar.

„Móttökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum og greinilegt að Kópavogsbúar kunna að meta þjónustuna," segir Lísa Z. Valdimarsdóttir, forstöðumaður Bókasafns Kópavogs. „Við erum fyrsta bókasafnið á Íslandi að bjóða þessa viðbótarþjónustu við þá hefðbundnu þjónustu sem er á söfnunum sjálfum og stolt af því að vera í fararbroddi hér."

Boxið virkar eins og póstboxin sem hafa verið að spretta upp út um allt land á undanförnum árum þar sem hægt er að sækja pakka í box. Þetta er einföld leið fyrir lánþega safnsins að nálgast nýjustu og vinsælustu bækurnar, en í boxinu verða alltaf tíu nýir titlar, eins er hægt er að skila lánsbókum. Hægt er að taka frá bók og sækja hana í boxið. Bækurnar eru þá fráteknar á leitir.is og kemur starfsfólk bókunum í Bókaboxið . Bókinni verður haldið í fjóra sólarhringa eftir að hún er komin í boxið.

Bókasafn Kópavogs er eitt glæsilegasta bókasafn landsins og er einn af máttarstólpum samfélagsins í Kópavogi. Það eru um 800 gestir sem sækja safnið daglega og fer gestum fjölgandi með hverju ári. Safnið býður upp á fjölda viðburða auk hefðbundinnar þjónustu og hefur verið leiðandi í tækniþróunum til að mynda að bjóða upp á greiðslugátt í gegnum sjálfsafgreiðsluvélar.

Bókaboxið er staðsett í Vallakór 4 (í sama húsi og velferðarsvið Kópavogsbæjar og Krónan) og er opið kl. 9:00-21:00 alla daga vikunnar.