Beint í efni
Til baka í yfirlit

Börn og bæj­ar­full­trú­ar á kaffi­hús­a­fundi

Fulltrúar barna í grunnskólum og frístundastarfi ásamt fulltrúum ungmennaráðs Kópavogs funduðu með bæjarfulltrúum föstudaginn 11.september.

Fulltrúar barna og ungmenna í Kópavogi hittu bæjarfulltrúa á kaffihúsafundi.
Fulltrúar barna og ungmenna í Kópavogi hittu bæjarfulltrúa á kaffihúsafundi. Áður en fundur hófst stilltu þátttakendur sér upp á mynd.

Fulltrúar barna í grunnskólum og frístundastarfi ásamt fulltrúum ungmennaráðs Kópavogs funduðu með bæjarfulltrúum föstudaginn 11. september. Umræðuefnið voru tillögur Barnaþings og Ungmennaþings 2026 sem kynntar voru bæjarstjórn í vor.

Fundurinn, sem fram fór í Molanum, var með kaffihúsasniði, börn og bæjarfulltrúar sátu saman við borð og fóru yfir öll þau fjölbreyttu málefni sem tengjast tillögunum. Í lok kaffihúsafundar forgangsröðuðu þátttakendur úr hópi barna og ungmenna þeim tillögum sem þeim þykja mikilvægastar.

„Það er mikilvægt að börn finni að rödd þeirra skipti máli og kaffihúsafundurinn er gott tækifæri til þess að heyra þeirra sjónarmið og ræða tillögurnar sem fylgt er eftir í samstarfi við börn og starfsfólk bæjarins. Undanfarin ár hafa ýmsar tillögur barna og ungmenna verið framkvæmdar þannig að börn og ungmenni í Kópavogi hafa sannarlega áhrif,‘‘ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Kaffihúsafundur í Molanum 2026.
Kaffihúsafundur barna, ungmenna og bæjarfulltrúa í Molanum 2026. Starfsfólk Kópavogsbæjar var í hlutverki borðstjóra og til aðstoðar.

Kaffihúsafundurinn er, eins og Barna- og Ungmennaþing, hluti af verkefninu Barnvænt sveitarfélag UNICEF. Í því er lögð er áhersla á að börn hafi raunveruleg tækifæri til að tjá skoðanir sínar og hafa áhrif á samfélagið sitt. Kópavogsbær hefur haft viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag frá árinu 2021.

Forgangsröðun að loknum kaffihúsafundi

Forgangsröðun barna og ungmenna á tillögum sem lagðar hafa verið fyrir bæjarstjórn. Efsta tillagan er mikilvægust og svo koll af kolli.

  1. Lengja opnun sundlauga.
  2. Fjölbreyttari morgunmat (ekki bara hafragraut).
  3. Ungmenni undir 18 ára fái strætókort frá Kópavogsbæ.
  4. Fleiri tónleika í Kópavogi (nýta Molann betur í það).
  5. Fleiri ruslatunnur á almannafæri.
  6. Nota Innu í grunnskólum í stað Mentor.
  7. Meira fjármagn í list- og verkgreinar og val.
  8. Huga að gæðum skólamatar fyrir nemendur.
  9. Skipulagsdagar upp við helgi.
  10. Kópa á umferðaljósin.
  11. Klósettrennibraut í Kópavogslaug.

Tillögur barna sem hafa verið framkvæmdar

Raddir barna og ungmenna hafa þegar haft áhrif á þróun þjónustu og starfsemi bæjarins. Meðal þeirra tillagna sem komið hafa frá börnum og ungmennum á undanförnum árum og hafa verið innleiddar má nefna

  • Lengdur opnunartími í sundlaugum Kópavogs
  • Matskvarðar samræmdir í grunnskólum Kópavogs
  • Frístundastyrkur Kópavogs hækkaður
  • Aukið miðstigsstarf fyrir börn í 5.-10.bekk í félagsmiðstöðvum Kópavogs
  • Sumaropnun í félagsmiðstöðvum Kópavogs fyrir börn í 5.-10.bekk
  • Lyklaborð við spjaldtölvur fyrir nemendur í grunnskólum Kópavogs
  • Aukin ráðgjöf fyrir ungmenni með ráðgjafa ungmenna í Molanum og ráðgjafa á vegum Bergsins headspace.
  • Aukið aðgengi að sálfræðingum á unglingastigi fyrir nemendur í 9. og 10.bekk.
  • Opið alla föstudaga fyrir mið og unglingastig í félagsmiðstöðvum Kópavogs