Dagskrá menningarhúsanna kynnt
Vetrardagskrá Menningarhúsanna í Kópavogi verður kynnt fimmtudaginn 3. september kl. 17–18.30. Boðið verður upp á léttar veitingar og skemmtilega dagskrá.

Vetrardagskrá Menningarhúsanna í Kópavogi verður kynnt fimmtudaginn 3. september kl. 17–18.30. Boðið verður upp á léttar veitingar og skemmtilega dagskrá.
Á kynningunni verður gefinn forsmekkur að þeim hundruðum viðburða sem fram undan eru í menningarhúsunum á vetrarmánuðum og veitingastaðurinn Krónikan í Gerðarsafni kynnir matseðil sinn. Dagskráin samanstendur meðal annars af tónlistarflutningi, örleiðsögnum og upplestri í notalegri stemningu menningarhúsanna.
Viðburðir og veitingar
Kynningin hefst í Gerðarsafni kl. 17, þar sem Kvennakórinn Blika syngur fyrir gesti og safnstjóri segir frá því sem er fram undan. Þaðan liggur leiðin í Náttúrusafnið, þar sem boðið verður upp á örleiðsögn um safnið sem er í sífelldri mótun. Á Bókasafni Kópavogs tekur forstöðumaður safnsins á móti gestum og skáldkonan Guðrún Eva Mínervudóttir spjallar við gesti. Að lokum er gengið yfir í Salinn, þar sem forstöðumaður Salarins stiklar á stóru um dagskrá hans fram undan, Hanna Dóra Sturludóttir tekur lagið, skálað verður fyrir haustinu og gestum boðið að bragða á úrvali veitinga frá Krónikunni.
Taktu frá daginn, mættu með góða skapið og röltu með okkur inn í menningarhaustið í Kópavogi!


