Beint í efni
Til baka í yfirlit

Dóm­ur Lands­réttar í máli nr. 36/2021 Vatns­enda­mál

Landsréttur kvað upp dóm í Vatnsendamáli í dag. Landsréttur sneri við niðurstöðu héraðsdóms að því er varðar eignarnám bæjarins árið 2007 en staðfesti niðu

Úrskurður var kveðinn upp í Vatnsendamáli í dag.
Úrskurður var kveðinn upp í Vatnsendamáli í dag.

Hinn 25. apríl 2014 var Kópavogsbæ birt stefna af hálfu hluta erfingja Sigurðar K. Hjaltested, fyrrum ábúanda á Vatnsenda.

Aðalkrafa stefnenda var sú að Kópavogsbær greiddi dánarbúi Sigurðar tæpa 75 milljarða króna vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. Málið var þingfest 5. nóvember 2014.

Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 22. desember 2020 var K ópavogsbær sýknaður af öllum dómkröfum stefnenda er tóku til eignarnám s árin 1992, 1998 og 2000. Vegna eignarnáms Kópavogsbæjar 2007 var bærinn dæmdur til að greiða dánarbúi Sigurðar K. Hjaltested kr. 968.000.000 .

Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem kvað upp dóm í málinu í dag. Landsréttur sneri við niðurstöðu héraðsdóms að því er varðar eignarnám bæjarins árið 2007 en staðfesti niðurstöðu héraðsdóms að öðru leyti og sýknaði Kópavogsbæ þannig af öllum dómkröfum í málinu.