Beint í efni
Til baka í yfirlit

Ein­fald­ari gagna­skil með nýrri staf­rænni lausn

Kópavogsbær hefur tekið í notkun stafræna lausn sem einfaldar skil á skattagögnum vegna þjónustu bæjarins. Með upplýstu samþykki íbúa getur bærinn nú sótt nauðsynleg gögn beint frá Skattinum í stað þess að íbúar þurfi sjálfir að afla þeirra og senda inn til bæjarins.

Ný stafræn lausn einfaldar skil á skattagögnum vegna þjónustu Kópavogsbæjar.

Bærinn hefur þannig einfaldað afgreiðsluna fyrir íbúa sem áður þurftu að skrá sig inn hjá Skattinum, finna skattframtal, hlaða niður og senda bænum.

Lausnin er meðal annars nýtt vegna félagslegs leiguhúsnæðis og við ákvörðun gjaldflokka í stuðningsþjónustu. Hún nýtist bæði við afgreiðslu nýrra erinda og reglubundin gagnaskil þeirra sem þegar nýta þjónustu bæjarins.

Áður en samþykki er veitt fyrir gagnaöflun fær íbúinn upplýsingar um hvaða gögn verði sótt, hvers vegna þeirra sé þörf og hvernig þau verði notuð. Íbúinn fær einnig afrit af gagnaöfluninni í pósthólfið á Mínum síðum á Ísland.is.

Þess má geta að í samráði við íbúa um stafrænar og snjallar lausnir haustið 2025 kom fram ósk um að gögn yrðu sótt sjálfkrafa milli stofnana með samþykki viðkomandi. Verkefnið er þannig dæmi um hvernig ábendingar úr íbúasamráði geta orðið að áþreifanlegum umbótum í þjónustu bæjarins.

Lausnin var þróuð af teymi stafrænnar þróunar hjá Kópavogsbæ í samstarfi við starfsfólk velferðarsviðs.