Beint í efni
Til baka í yfirlit

Jóla­stjarn­an á Háls­a­torgi

Kveikt var á jólastjörnunni á Hálsatorgi í dag, föstudaginn 18. nóvember. Börn af leikskólanum Urðarhóli voru viðstödd og sungu tvö jólalög af því tilefni

Börn frá Urðarhóli við Jólastjörnuna á Hálsatorgi.
Börn frá Urðarhóli við Jólastjörnuna á Hálsatorgi.

Kveikt var á jólastjörnunni á Hálsatorgi í dag, föstudaginn 18. nóvember. Börn af leikskólanum Urðarhóli voru viðstödd, töldu niður og gengu svo í kringum stjörnuna komu viðstöddum í jólaskapið.

Þetta er fjórða árið í röð sem stjarnan er á Hálsatorgi en hún veitir mikla og fallega lýsingu á svæðið, gangandi og akandi vegfarendum til mikillar ánægju.

Uppsetning jóla- og skammdegisljósa er því langt komin hjá Kópavogsbæ. Lokahnykkurinn á uppsetningu ljósanna er næstu helgi þegar tendrað er á jólatréi bæjarins á Aðventuhátíðinni 26.nóvember.