Vetrarfrí í Kópavogi
Grunnskólar í Kópavogi eru í vetrarfríi dagana 23. og 24. febrúar. Af því tilefni er boðið upp á fjölbreytta dagskrá á Bókasafni Kópavogs, aðalsafni og Lin

Grunnskólar í Kópavogi eru í vetrarfríi dagana 23. og 24. febrúar. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á Bókasafni Kópavogs, aðalsafni og Lindasafni, Gerðarsafni og Náttúrufræðistofu í vetrarfríinu: Smiðjur, kvikmyndasýningar og ókeypis á sýningar. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Fimmtudagur 23. febrúar
** Bókasafn Kópavogs - aðalsafn **
11:00 - 12:45 Teiknimyndin Áfram (Onward) verður á stóra tjaldinu í fjölnotasalnum á fyrstu hæð fyrir bíóþyrsta gesti.
13:00 - 15:00 Spilavinir mæta á aðalsafn með æsispennandi borðspil fyrir krakka á öllum aldri.
** Lindasafn **
13:00-15:00 Armbandasmiðja þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum.
** Gerðarsafn **
13:00 - 15:00 Grímugerðarsmiðja með Auði Ómarsdóttur og Kristínu Karólínu Helgadóttur.
Föstudagur 24. febrúar
** Bókasafn Kópavogs - aðalsafn **
11:00-13:00 Litrík perlusmiðja á 1. hæð. Perlaðu allt það sem hugurinn girnist!
Ókeypis er á sýninguna Tracing Fragments (Að rekja brot) í Gerðarsafni fyrir fullorðna í fylgd með börnum.
Á Náttúrufræðistofu er hægt að skoða heiminn í gegnum innsetningu ÞYKJÓ, Sjónarspil, og kynnast fjölbreyttum dýrum og lífverum á grunnsýningu Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Sjáumst í vetrarfríinu í Kópavogi.


