Beint í efni
Til baka í yfirlit

Ljóð­staf­ur Jóns úr Vör

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir til samkeppni um Ljóðstaf Jóns úr Vör. Öllum skáldum er velkomið að taka þátt en ljóðið má ekki hafa birst áður.

Brynja Hjálmsdóttir fékk Ljóðstaf Jóns úr Vör árið 2022.

Ljóði skal skilað í einu eintaki sem merkt er dulnefni. Með eintakinu skal fylgja eitt lokað umslag, merkt dulnefninu, sem inniheldur upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins. Einungis umslög sem tilheyra vinnings- og viðurkenningarljóðum verða opnuð en öllum öðrum gögnum eytt.

Ljóðstafurinn verður afhentur ásamt viðurkenningum þriðjudaginn 21. janúar 2025, á afmælisdegi Jóns úr Vör.

Utanáskrift umslags er: Ljóðstafur Jóns úr Vör Menning í Kópavogi Digranesvegi 1 200 Kópavogi.

Skilafrestur er til og með 5. nóvember 2024.

Nánar