Ertu með auga fyrir umhverfinu?
Opnað hefur verið fyrir innsendingu tilnefninga til umhverfisviðurkenninga Kópavogs en viðurkenningarnar verða afhentar í sumarlok.

Opnað hefur verið fyrir innsendingu tilnefninga til umhverfisviðurkenninga Kópavogs en viðurkenningarnar verða afhentar í sumarlok.
Hægt er að tilnefna einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki, stofnanir eða félagasamtök, sem og einstök hús eða lóðir, sem hafa skarað fram úr í að bæta umhverfi sitt og annarra. Meðal flokka sem veitt er viðurkenning fyrir eru umhirða húss og lóðar, endurgerð húsnæðis, frágangur lóðar, hönnun og framlag til umhverfismála.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til fimmtudagsins 2. júlí. Viðurkenningar verða veittar í ágúst 2026.


