Beint í efni
Til baka í yfirlit

Fast­eigna­gjöld 2023

Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda í Kópavogi er 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar til september. Alls eru 8 gjalddagar.

Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda í Kópavogi er 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar til september.
Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda í Kópavogi er 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar til september.

Fyrsti gjalddagi fasteignagjalda í Kópavogi er 1. febrúar, síðan 1. hvers mánaðar til september. Alls eru 8 gjalddagar.

Álagning fasteignagjalda byggir á fasteignamati húsa og lóða í Kópavogi, sem tekur meðal annars mið af stærð þeirra, notkun og lóðarhlutastærð.

Veittur er 3% staðgreiðsluafsláttur ef gjöldin í heild eru greidd fyrir 17. febrúar 2023.

Hægt er að ganga frá staðgreiðslu gjalda með því að draga 3% frá heildarálagningu gjaldanna og leggja inn á banka: 0130-26-74, kt. 700169-3759.

Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorku-lífeyrisþega, sem búa í eigin íbúð , og er hann reiknaður út frá álagningu 2022 vegna skatttekna ársins 2021, þ.e. samtalan af stofni til útreiknings tekjuskatts og útsvars (reitur 2.7 og 2.8) og fjármagnstekjum samtals (reitur 3.10)

  • 100% lækkun: Einstaklingar með heildarárstekjur allt að 6.213.700 krónur. Hjón með heildarárstekjur allt að 7.939.400 krónur.
  • 75% lækkun: Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 6.213.701-6.316.500 krónur. Hjón með heildarárstekjur á bilinu 7.939.401-8.353.900 krónur.
  • 50% lækkun: Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 6.316.501-6.420.400 krónur. Hjón með heildarárstekjur á bilinu 8.353.901-8.767.300 krónur.
  • 25% lækkun: Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 6.420.401-6.520.000 krónur. Hjón með heildarárstekjur á bilinu 8.767.301-9.180.700 krónur.

Vinsamlegast athugið að ekki verða sendir út greiðsluseðlar heldur verður einungis stofnuð krafa í heimabanka með sama hætti og áður. Engin breyting verður hjá þeim sem greitt hafa með boðgreiðslum eða í greiðsluþjónustu. Ekki er tekið á móti peningum í afgreiðslu Kópavogsbæjar, einungis kortafærslum eða millifærslum.

Ekki verða sendir út álagningarseðlar á pappírsformi en hægt er að nálgast nýjustu álagningarseðla á island.is og í Þjónustugátt Kópavogsbæjar á vefsíðu bæjarins www.kopavogur.is undir flipanum þjónustugátt.

Þeir sem ekki hafa rafræn skilríki geta óskað eftir afriti af álagningarseðli með því að senda tölvupóst á netfangið: thjonustuver@kopavogur.is.

Nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 441 0000 og fyrirspurnir má senda á netfangið: thjonustuver@kopavogur.is