Beint í efni
Til baka í yfirlit

Fífu­hvamms­veg­ur til aust­urs á milli að­reinar að Hafn­ar­fjarð­ar­vegi og Dal­smára lok­að­ur

Miðvikudaginn 28. júní frá kl. 9:00 til 14:30 verður Fífuhvammsvegur til austurs lokaður.

Lokun við Fífuhvammsveg
Lokun við Fífuhvammsveg

Miðvikudaginn 28. júní frá kl. 9:00 til 14:30 verður Fífuhvammsvegur til austurs á milli aðreinar að Hafnarfjarðarvegi og Dalsmára lokaður vegna malbiksframkvæmda við Dalsmára. Hjáleið er um Arnarnesveg og Smárahvammsveg. Umferð til vesturs verður óheft þótt búast megi við skammvinnum truflunum á hringtorginu rétt á meðan vinna fer þar fram.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru ökumenn beðnir um að sýna tillitsemi og virða merkingar.