Fimm árum eldri en sterkari og snarpari
Eldri Kópavogsbúar sem tekið hafa þátt í Virkni og vellíðan hafa bætt þol, styrk og snerpu frá því að Virkni og vellíðan hóf göngu sína.

Niðurstöður heilsufarsmælinga sýna að frá árinu 2022 hefur þol þátttakenda aukist um 10,5%, snerpa um 7,8%, styrkur í neðri hluta líkamans um 4,8% og styrkur í efri hluta líkamans um 3%. Á sama tímabili hefur meðalaldur hópsins hækkað úr 73 árum í 78 ár.
Mælingarnar fara fram árlega í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Við samanburðinn nú voru skoðaðar niðurstöður þeirra sem tóku þátt bæði í fyrstu mælingunni árið 2022 og þeirri nýjustu árið 2026.
„Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að halda áfram að hreyfa sig og þjálfa líkamann á efri árum. Virkni og vellíðan snýst ekki aðeins um að bæta líkamlega færni hér og nú heldur um að skapa aðstæður þar sem fólk getur viðhaldið sjálfstæði sínu, styrk og lífsgæðum til lengri tíma,“ segir Eva Katrín Friðgeirsdóttir, þjálfari hjá Virkni og vellíðan.
Verkefnið Virkni og vellíðan býður eldri bæjarbúum í Kópavogi upp á fjölbreytta og heilsueflandi hreyfingu nærri heimili þeirra. Markmiðið er að efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu og stuðla að virkni og vellíðan á efri árum.

