Beint í efni
Til baka í yfirlit

Fjöl­breytt dag­skrá í haust­fríi

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á aðalsafni bókasafnsins í haustfríi grunnskóla Kópavogs dagana 24. og 25. október. Öll velkomin á meðan húsrúm leyf

Haustfrí í Kópavogi er 24. og 25. október.
Haustfrí í Kópavogi er 24. og 25. október.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á aðalsafni bókasafnsins í haustfríi grunnskóla Kópavogs dagana 24. og 25. október. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Mánudagur 24. október

11:00-12:45 - Bíósýning á 1. hæð aðalsafns. Teiknimyndin Coco verður á stóra tjaldinu í fjölnotasalnum fyrir bíóþyrsta gesti.

13:00-15:00 - Ævintýraleg skrímslabókasmiðja á 1. hæð aðalsafns. Notaleg samverustund fyrir alla fjölskylduna, líka afa og ömmu. Allt efni á staðnum. Sjáumst í brakandi sköpunarstuði!

13:00-15:00 - Á Lindasafni verður perlusmiðja með hrekkjavökumyndum fyrir skapandi krakka.

Þriðjudagur 25. október

11:00-12:45 - Bíósýning á teiknimyndinni Encanto á 1. hæð aðalsafns.

13:00-15:00 - Hrekkjavökuperl í fjölnotasal á 1. hæð aðalsafns. Draugar, grasker og fleira ógurlegt!

13:00-15:00 - Á Lindasafni verður barmmerkjasmiðja í öllum regnbogans litum. Teiknaðu hvað sem þér dettur í hug og skelltu því í barmmerki.