Beint í efni
Til baka í yfirlit

Flest­um er­ind­um um mið­bæ svar­að inn­an tveggja daga

Greining á viðbragðstíma erinda sem berast netfanginu midbaer@kopavogur.is sýnir að 74% flokkaðra erinda fengu svar sama dag eða næsta virka dag. Yfirferð á erindum sýnir að þau endurspegla einkum áhrif framkvæmda á daglegt líf íbúa og rekstraraðila.

Greining á miðbær í mótun
Greining á viðbragðstíma erinda sem berast vegna framkvæmda í miðbæ sýna að meirihluta er svarað innan tveggja daga.

Greining á viðbragðstíma erinda sem berast netfanginu midbaer@kopavogur.is sýnir að 74% flokkaðra erinda fengu svar sama dag eða næsta virka dag. Yfirferð á erindum sýnir að þau endurspegla einkum áhrif framkvæmda á daglegt líf íbúa og rekstraraðila.

Netfangið midbaer@kopavogur.is tekur við fyrirspurnum og ábendingum sem tengjast framkvæmdum og þróun miðbæjar Kópavogs. Greiningin er gerð með það að leiðarljósi að hafa betri yfirsýn yfir upplýsingamiðlun um framkvæmdir í miðbæ.

Fólki er sérstaklega bent á að senda erindi sín þangað á vefsíðu um framkvæmdir í miðbænum, Miðbær í mótun. Með því fara erindin í sameiginlegt pósthólf, þar sem unnt er að halda utan um þau og koma þeim til réttra aðila eftir efni. Starfsfólk Kópavogsbæjar vaktar þetta pósthólf.

74% fengu svar á fyrstu sólarhringum

Greiningin nær yfir tímabilið frá 1. júlí 2025 til 30. september 2026. Alls voru 141 raunverulegt erindi yfirfarin. Viðbragðstími var flokkaður fyrir 139 þeirra. Af þeim fengu 58 erindi svar sama dag og 45 einum virkum degi síðar. Samtals fengu því 103 erindi svar sama dag eða næsta virka dag, sem jafngildir um 74%. Miðgildi viðbragðstíma var einn virkur dagur.

Mest mældist álagið í júlí 2026, þegar 23 erindi bárust. Í ágúst sama ár bárust 20 erindi og í september 18. Fæst erindi bárust í ágúst 2025, eða eitt.

Erindin snúa að áhrifum framkvæmda á daglegt líf

Yfirferðin sýnir að erindin endurspegla einkum áhrif framkvæmda á daglegt líf íbúa og rekstraraðila. Helstu viðfangsefnin voru tímasetningar framkvæmda, aðgengi og bílastæði, hávaði og sprengingar, öryggi á framkvæmdasvæðum, ástand eigna, frágangur nærumhverfis og upplýsingagjöf.

Um greininguna

Viðbragðstími var talinn í virkum dögum frá móttöku erindis að fyrsta staðfesta svari eða afgreiðslu. Svar sama dag var skráð sem núll dagar. Handvirk yfirferð var nauðsynleg þegar efnislína breyttist, erindi var áframsent eða svar barst úr öðru netfangi. Miðgildi er notað sem lykilmælikvarði þar sem einstök mál geta tekið mun lengri tíma en önnur og þannig haft mikil áhrif á meðaltal.

Nánar á upplýsingasíðunni Miðbær í mótun.