Beint í efni
Til baka í yfirlit

Frí­stunda­messa fyr­ir börn og fjöl­skyld­ur hald­in í fyrsta sinn

Frístundamessa Kópavogs verður haldin í fyrsta skipti laugardaginn 29.ágúst í íþróttahúsinu Digranesi frá 11 til 14.

Frístundamessa verður haldin í Kópavogi 29.ágúst 2026.

Frístundamessa Kópavogs verður haldin í fyrsta skipti laugardaginn 29.ágúst í íþróttahúsinu Digranesi frá 11 til 14.

Frístundamessan er tækifæri fyrir íþrótta- og tómstundafélög til þess að kynna starfsemi sína fyrir börn og fjölskyldur og er Kópavogsbær fyrsta sveitarfélagið á höfuðborgarsvæðinu sem efnir til slíks viðburðar.

„Við erum mjög spennt að halda Frístundamessu í Kópavogi í fyrsta sinn og vonumst til þess að sjá sem flest börn og fjölskyldur þeirra. Þetta verður líflegur og skemmtilegur viðburður og við hvetjum Kópavogsbúa til þess að mæta,“ segir Ana Tepavcevic verkefnastjóri íþróttadeildar sem hefur haft veg og vanda af því að skipuleggja frístundamessuna.

„Markmiðið er að það verði bæði mjög skemmtilegt og gagnlegt að heimsækja frístundamessuna. Það er frábært að fá vettvang til að sýna framboð frístunda og svo verðum við til aðstoðar ef þarf ef foreldrar vilja skrá börnin sín eða fá aðstoð við að sækja um frístundastyrkinn,“ segir Ana.

Alls ætla 20 íþrótta- og tómstundafélög að taka þátt, flest úr Kópavogi en einnig úr Reykjavík og Hafnarfirði. Boðið verður upp á skemmtilega dagskrá á frístundamessunni og veitingar fyrir gesti og gangandi.