Fyrsti fundur bæjarstjórnar eftir sumarfrí
Fyrsti fundur bæjarstjórnar Kópavogs haustið 2023 fer fram þriðjudaginn 22.ágúst.

Fyrsti fundur bæjarstjórnar Kópavogs haustið 2023 fer fram þriðjudaginn 22.ágúst .
Að jafnaði er fundað annan og fjórða þriðjudag í mánuði og hefjast fundir klukkan 16.00. Fundirnir eru sendir út á vef Kópavogsbæjar og hægt að nálgast upptökur af þeim á vefnum og fundargerðir .
Dagskrá fundanna er birt á vef bæjarins fyrir fundi.
Fundarstaður bæjarstjórnar er Hábraut 2.


