Fyrirhugað er að fræsa Fífuhvammsveg
Fyrirhugað er að fræsa Fífuhvammsveg á milli Salavegar og Versali fimmtudaginn 9. júní

Fyrirhugað er að fræsa Fífuhvammsveg á milli Salavegar og Versali fimmtudaginn 9. júní frá kl. 9:00 til 15:00 og verður gatan lokuð á meðan framkvæmdum stendur. Hjáleið fyrir vegfarendur á leið austur Fífuhvammsveg verður um Hlíðardalsveg, Hvammsveg og Salaveg. Hjáleið fyrir vegfarendur á leið vestur Fífuhvammsveg frá Arnarnesvegi er um Arnarnesveg og Lindarveg. Opið verður fyrir vegfarendur að Salalaug frá Arnarnesvegi. Aðkoma að Lindarkirkju og Lindarkirkjugarði verður lokuð á meðan framkvæmdum á hringtorgi við Salaveg stendur.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdin kann að valda og eru ökumenn beðnir um að sýna tillitsemi og virða merkingar.



