Beint í efni
Til baka í yfirlit

Gám­ar fyr­ir flug­eld­ar­usl og jóla­tré

Settir verða upp gámar á fimm stöðum í Kópavogi fyrir flugeldarusl, líkt og áður. Á sömu stöðum verða settir upp gámar eingöngu fyrir jólatré. Gámarnir ver

Settir eru upp gámar fyrir jólatré og flugeldarusl á nokkrum stöðum.
Settir eru upp gámar fyrir jólatré og flugeldarusl á nokkrum stöðum.

Settir verða upp gámar á fimm stöðum í Kópavogi fyrir flugeldarusl, líkt og áður. Á sömu stöðum verða settir upp gámar eingöngu fyrir jólatré. Gámarnir verða aðgengilegir frá 31.desember til og með 10.janúar.

Gámarnir verða á eftirfarandi stöðum:

Kársnes: Við grenndargámastöðina á Borgarholti

Digranes: Við grenndargámastöðina við Íþróttahúsið Digranes

Smárahverfi: Við grenndargámastöðina við Kópavogsvöll

Linda- og Salahverfi: Bílastæði við Salalaug / Íþróttahúsið Versali

Kóra-, Þing- og Hvarfahverfi: Við malarplanið við Vallakór 8

Tveir gámar verða á hverjum stað merktir hvorum úrgangsflokk, annars vegar flugeldarusli og hinsvegar jólatrjám. Í gámana á eingöngu að fara það sem merkingin segir til um.

Kort sem sýnir staðsetningu gámanna: