Gámum fyrir garðaúrgang í vorhreinsun fjölgað
Íbúar í Kópavogi hafa verið duglegir að taka til hendinni í görðum síðan vorhreinsun hófst. Til þess að bregðast við hefur tveimur gámum verið bætt við, í

Íbúar í Kópavogi hafa verið duglegir að taka til hendinni í görðum síðan vorhreinsun hófst. Til þess að bregðast við hefur verið bætt við gámi í Víðigrund hjá Skólagörðunum .
Gámarnir fyrir garðaúrgang munu standa til 20. maí.
Staðsetning gáma
- Kársnes, við Vesturvör 14
- Digranes , við íþróttahúsið Digranesi
- Smára- og Lindahverfi , neðst á Glaðheimasvæðinu, Álalind 2
- Sala- og Kórahverfi, við garðlönd, Rjúpnavegur/ Arnarnesvegur
- Þinga- og Hvarfahverfi , á bílastæði við Vallakór 8
Viðbót
Gámarnir eru einungis fyrir garðaúrgang og óheimilt að setja annað í gámana. Byggingaúrgangi, almennur úrgangi, spilliefnum, málmum, gleri og öðru sem tilfellur skal skilað í endurvinnslustöðvar Sorpu.
Athugið að ekki verður farið í götur bæjarins til að hirða garðaúrgang.
Garðaúrgangur sem skilinn er við lóðamörk hefur minnkað mjög mikið eftir að byrjað var að koma fyrir gámum í hverfum. Tími sem gámarnir standa hefur verið lengdur en þeir eru tæmdir reglulega.


