Gata ársins
Óskað er eftir tilnefningum íbúa til Götu ársins í Kópavogi árið 2025.

Óskað er eftir tilnefningum íbúa til Götu ársins í Kópavogi árið 2025.
Veittar hafa verið viðurkenningar fyrir Götu ársins um árabil í Kópavogi. Tré er gróðursett í Götu ársins og sett upp merking þar sem fram kemur að gatan hafi hlotið nafnbótina.
Hægt er að skila inn tilnefningum til 10.júní og er það gert á vef bæjarins.
Það er Bæjarstjórn Kópavogs sem velur Götu ársins en tilkynnt verður um valið í sumarlok.


