Beint í efni
Til baka í yfirlit

Göt­ur sóp­aðar að vori

Götusópun að loknum vetri er hafin í Kópavogi.

Götusópun á Borgarholtsbraut í apríl 2024.
Götusópun á Borgarholtsbraut í apríl 2024.

Götusópun að loknum vetri er hafin í Kópavogi. Eins og venja er er byrjað á stofnbrautum og tengibrautum og að því loknu hafist handa við að sópa húsagötur og gangstéttir.

Hafist var handa í mars en veður hefur sett strik í reikninginn til þessa því ekki er hægt að sópa þegar hitastig er nálægt frostmarki.