Beint í efni
Til baka í yfirlit

Íbúa­fund­ir um ná­granna­vörslu

Bæjarstjóri í samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu býður til íbúafunda um nágrannavörslu.

Hvað getur þú gert?

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu býður þér á íbúafund um nágrannavörslu.

Í erindinu verður farið yfir hvað við getum sjálf gert til þess að standa vörð um samfélagið okkar, hvernig við styðjum hvert annað og hvað ber að varast.
Að erindi loknu verður opnað fyrir spurningar.

Fimmtudaginn 15. október kl. 17 í Barnaskóla Kársness

Þriðjudaginn 20. október kl. 17 í Salaskóla

Fundarstjóri: Sigrún María Kristinsdóttir, verkefnastjóri íbúatengsla hjá Kópavogsbæ

Heitt á könnunni.

Hlökkum til þess að sjá þig og eiga í virku samtali um Kópavoginn okkar. Hjálpumst að við að gera samfélagið okkar öruggt.