Beint í efni
Til baka í yfirlit

Ís­lenska sjáv­ar­út­vegs- og fisk­eld­is­sýn­ing­in í Kópa­vogi

Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin 2026 var sett 22.september. Þetta er í fimmtánda sinn sem sýningin er í Kópavogi og stendur hún til 24.september.

Icefish 2026.
Fyrirtæki frá Grindavík eru áberandi á sjávarútvegssýningunni í ár. Á myndinni eru Ásdís Kristjánsdóttir og Elísabet Sveinsdóttir ásamt bræðrunum Einari og Eiríki Óla Dagbjartssonum úr Grindavík.

Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin 2026 var sett 22.september. Þetta er í fimmtánda sinn sem sýningin er í Kópavogi og stendur hún til 24.september.

„Kópavogsbær hefur verið gestgjafi sýningarinnar í rúman aldarfjórðung eða allt frá árinu 1999 og hefur verið ánægjulegt að hafa þennan glæsilega og fjölsótta viðburð í bæjarfélaginu. Sýningin er og hefur verið vettvangur til þess að kynnast því helst sem telst til tíðinda í sjávarútvegi og gott tækifæri fyrir þátttakendur til þess að skapa ný tengsl og styrkja þau sem þegar eru til staðar,“ sagði Andri Steinn Hilmarsson formaður bæjarráðs Kópavogs í ávarpi sínu til gesta við setninguna.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra flutti ræðu og setti sýninguna sem fram fer í Fífunni.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og Elísabet Berglind Sveinsdóttir forseti bæjarstjórnar skoðuðu sýninguna á fyrsta degi en fjöldi fyrirtækja tekur þátt og sýnir ýmsar nýjungar í starfsemi sinni.

„Það er mikil verðmætasköpun í sjávarútvegi og virkilega gaman að hitta svona marga frá fyrirtækjum í sjávarútvegi og tengdum greinum,“ sagði Ásdís við tækifærið.

Á vef Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningarinnar er að finna fréttir frá sýningunni og helstu upplýsingar.