Beint í efni
Til baka í yfirlit

Íþrótta­vika í Kópa­vogi

Kópavogsbær tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu 23.-30.september. Ókeypis á alla viðburði og öll velkomin. Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á suma viðburði.

Kópavogur tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu
Kópavogur tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu.

Kópavogsbær tekur þátt í Íþróttaviku Evrópu 23.-30.september. Ókeypis á alla viðburði og öll velkomin. Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á suma viðburði.

Viðburðirnir eru af fjölbreyttum toga og henta öllum aldurshópum eins og meðfylgjandi yfirlit sýnir. Hlekkur í skráningarsíðu fylgir þeim viðburðum sem þarf að skrá sig á.

Ganga á vegum Virkni og Vellíðan fyrir 60 ára og eldri

  • 23. september, kl. 13:00
  • Gengið verður Búrfellsgjánna, um það bil 4,5 km

Gusa í Litla saunahúsinu á Kársnesi

  • 23. september, kl. 20:15

Go Move þjálfun að Hafnarbraut 9a

  • 23. september KARLAÞJÁLFUN, kl. 17:25-18:10
  • 24. september KONUÞJÁLFUN, kl. 12:00-12:45
  • 24. september KONUÞJÁLFUN, kl. 17:25-18:10
  • 28. september KONUÞJÁLFUN, kl. 16:30-17:15
  • 28. september KARLAÞJÁLFUN, kl 7:25-08:10
  • 30. september KARLAÞJÁLFUN, kl 7:25-08:10

Go move er með fjölbreytta styrktar og úthaldsþjálfun.

Opin tími í Gerplu fyrir leikskólabörn

  • 25. september, kl. 11:00-12:30
  • Opinn tími fyrir foreldra/forsjáraðila með börn á leikskólaaldri. Tækifæri til að leika sér saman í fimleikasal Gerplu.

Rafíþróttamót í Molanum (16-25 ára)

  • 26. september
  • Skráning á Instagrami Molans

Sund Zumba tími fyrir almenning í Salalaug

  • 26. september, kl. 16:30
  • Skemmtilegur zumba tími í vatni. Lofað er góðu stuði og skemmtilegri tónlist. Frítt í sundlaugina fyrir þá sem eru að mæta í zumba tímann.