Beint í efni
Til baka í yfirlit

Jafn­rétt­is- og mann­rétt­ind­aráð aug­lýs­ir

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki og ábendingum til viðurkenninga.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki og ábendingum til viðurkenninga jafnréttis- og mannréttindaráðs…
Auglýst er eftir umsóknum um styrki og ábendingum til viðurkenninga jafnréttis- og mannréttindaráðs.

Jafnréttis- og mannréttindaráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki og ábendingum til viðurkenninga.

Jafnréttis- og mannréttindaráð auglýsir eftir:

  • Umsóknum um styrki til verkefna sem hafa framgang mannréttinda og jafnréttis í Kópavogi að markmiði.
  • Styrkir eru veittir einstaklingum, stofnunum, hagsmunasamtökum eða öðrum hópum.
  • Ábendingum til viðurkenningar jafnréttis- og mannréttindaráðs. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, hópar eða félagasamtök sem hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttis- og mannréttindamála. Upphæð til úthlutunar er 480.000 kr.

Umsóknum og ábendingum skal skilað fyrir 26.nóvember á netfangið jafnrettisradgjafi (hja) kopavogur.is