Beint í efni
Til baka í yfirlit

Jer­emy Deller sýn­ir í Gerð­ar­safni

Sýning Jeremy Deller: Landlæg hamingja / National Happiness opnar í Gerðarsafni 16.maí klukkan 18.00.

Jeremy Deller sýnir í Gerðarsafni.
Jeremy Deller sýnir í Gerðarsafni.

Sýning Jeremy Deller: Landlæg hamingja / National Happiness opnar í Gerðarsafni 16.maí klukkan 18.00.

Jeremy Deller (f. 1966, London) er einn þekktasti samtímalistamaður Bretlands. Hann hlaut Turner-verðlaunin árið 2004 og var fulltrúi Bretlands á Feneyjatvíæringnum árið 2013. Hann kom til landsins í vor og hélt fyrirlestur í Listaháskólanum fyrir troðfullum sal, nemendur, listafólk, listfræðingar og áhugafólk um menningu fylltu salinn.

Hann opnar nú sýningu sem tekur yfir báða sali Gerðarsafns laugardaginn 16. maí kl. 18. Sýningin stendur til 06.09.26. og verða ýmsir viðburðir tengdir sýningunni á dagskrá í sumar.

Hann er væntanlegur í uppsetningu og vinnu við sýninguna á morgun, miðvikudag (13. maí), en opnunin á laugardaginn verður með þeim glæsilegri, mikið sjónarspil.

Skólahljómsveit Kópavogs hefur verið að æfa upp tónlist m.a. eftir David Bowie og mun spila við opnunina, en Deller leggur mikið upp úr því að tengjast samfélaginu sem hann vinnur í/með. Deller mun tala um verk sín og í kjölfarið verður sýningin opnuð.

Um sýninguna hér í Gerðarsafni

Jeremy Deller: Landlæg hamingja / National Happiness

Í kjarna listsköpunar Jeremy Dellers er löngun til að skapa tengingar, til að sýna samfélag okkar og þær marglaga flækjur sem hlykkjast um það með töframætti myndlistar. Í verkum sínum leiðir hann saman ólíka þætti, stígur svo aftur og sér hvað verður. Hann leyfir listinni að verða til í dýnamísku samspili við þá sem mæta henni.

Sýning Deller tekur yfir báða sali Gerðarsafns með Triumph of Art (2026) og Warning Graphic Content (1993–2026).

Triumph of Art (2026) er nýjasta verk Deller, frumsýnt í Gerðarsafni. Innsetning sem fangar samfélagslegt „mega“ samstarf þar sem Deller vann gjörninga með áhugaleikurum, listafólki, tónlistarfólki, kraftlyftingafólki og sundballerínum víðs vegar um Bretland.

Warning Graphic Content (1993–2026) er eins konar yfirlitssýning prentverka Deller. Þau fanga mikla umrótatíma og vísa í sögulega atburði og þekktar persónur. Verkin, sem birtast oft í almannarýmum, spretta upp úr grasrót og streitast gegn því að vera fínpússuð eða háfleyg. Mörg verkanna eru unnin í samstarfi við grafíska hönnuðinn Fraser Muggeridge.

Sýningarstjórar eru Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson og Birna Geirfinnsdóttir).