Tveir kjörstaðir í Kópavogi
Kjörfundur til alþingiskosninga fer fram 30. nóvember frá 09.00 til 22.00.

Kjörfundur til alþingiskosninga fer fram 30. nóvember frá 09.00 til 22.00.
Kjörstaðir í Kópavogi eru tveir, íþróttahúsið Smárinn og íþróttahúsið Kórinn .
Allar upplýsingar um alþingiskosningarnar 2024 er að finna á kosningavef stjórnarráðssins kosning.is . Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá í alþingiskosningunum 30. nóvemberber 2024 með því að fara inn á síðuna Hvar er ég að kjósa?
Íbúar vestan Reykjanesbrautar og í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Smáranum, Dalsmára 5. Íbúar austan Reykjanesbrautar að frátöldum þeim sem búa í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu Kórnum, Vallakór 12.


