Beint í efni
Til baka í yfirlit

Kópa­vogs­bær fær við­halds­vott­un á jafn­launa­kerfi

Kópavogsbær hefur lokið viðhaldsvottun á jafnlaunakerfi sveitarfélagsins samkvæmt jafnlaunastaðli. Vottunin staðfestir að jafnlaunakerfið er virkt, markvisst og í samræmi við kröfur staðalsins.

Jafnlaunamerki
Jafnlaunamerkið er veitt vinnustöðum sem hlotið hafa vottun á jafnlaunastaðli.

Kópavogsbær hefur með góðum árangri lokið viðhaldsvottun á jafnlaunakerfi sveitarfélagsins samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012. Vottunin, sem fram fór í febrúar, staðfesti að jafnlaunakerfið er virkt, markvisst og í samræmi við kröfur staðalsins.

Jafnlaunakerfið nær til alls starfsfólks Kópavogsbæjar og hefur það að markmiði að tryggja jafnan rétt, jöfn laun og sömu kjör fyrir sömu eða jafn verðmæt störf óháð kyni. Kerfið byggir á skýrum ferlum, starfsmati, reglubundinni launagreiningu og markvissri eftirfylgni.

Í tengslum við viðhaldsvottunina var framkvæmd árleg launagreining og fóru niðurstöður hennar fyrir rýni æðstu stjórnenda í febrúar. Engar athugasemdir komu fram við niðurstöðu launagreiningar og var jafnlaunakerfið metið virkt og árangursríkt.

Með vottunarúttektinni er staðfest að Kópavogsbær heldur áfram að vinna markvisst að jafnrétti í launa- og kjaramálum og uppfylla lagalegar skyldur samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.