Kópavogsskóli fær viðurkenningu UNICEF
Kópavogsskóli hlaut í dag viðurkenningu UNICEF sem réttindaskóli, réttindafrístund og félagsmiðstöð. Kópavogsskóli er fimmti skólinn í Kópavogi til að hljó

Kópavogsskóli hlaut í dag viðurkenningu UNICEF sem réttindaskóli, réttindafrístund og félagsmiðstöð. Kópavogsskóli er fimmti skólinn í Kópavogi til að hljóta þessa viðurkenningu.
Réttindaskóli UNICEF er hugmyndafræði og hagnýt verkefni fyrir skóla- og frístundastarf sem tekur mið af Barnasáttmálanum. Skólar, frístundir og félagsmiðstöðvar sem vinna verkefnið leggja sáttmálann til grundvallar í öllu sínu starfi.


