Beint í efni
Til baka í yfirlit

Kubb­ur tek­ur við sorp­hirðu í Kópa­vogi

Frá og með 1.ágúst tekur fyrirtækið Kubbur við stærstum hluta sorphirðu í Kópavogi af Íslenska gámafélaginu. Kubbur mun sjá um alla sorphirðu fyrir utan dj

Kubbur tekur við sorphirðu 1.ágúst.
Kubbur tekur við sorphirðu 1.ágúst.

Frá og með 1.ágúst tekur fyrirtækið Kubbur við stærstum hluta sorphirðu í Kópavogi af Íslenska gámafélaginu. Kubbur mun sjá um alla sorphirðu fyrir utan djúpgáma sem verða áfram tæmdir af Íslenska gámafélaginu.

Sorphirða á tunnum, kerum og djúpgámum var boðin út síðastliðin vor og var niðurstaða útboðs sú að Kubbur tekur við sorphirðu á almennum úrgangi, matarleifum, pappír og plasti úr tunnum og kerum en Íslenska gámafélagið úr djúpgámum.

Samningstími á sorphirðu úr tunnum og kerum eru sex ár með möguleika á framlengingu í eitt ár í senn, tvisvar sinnum en eitt ár í djúpgámum, með möguleika á framlengingu eitt ár í senn, þrisvar sinnum.

Kubbur sinnir sorphirðu víða um land en auk Kópavogs sér fyrirtækið um sorphirðu í Ísafjarðarbæ, Bolungarvík, Fjarðabyggð, Ölfusi, Vestmannaeyjum, Vesturbyggð, Tálknafirði, Vestur-Skaftafellssýslu og Snæfellsbæ.