Beint í efni
Til baka í yfirlit

Kynn­ing­ar­fund­ur um Sam­göngu­sátt­málann

Betri samgöngur og Vegagerðin í samstarfi við Kópavogsbæ efna til kynningarfundar um stöðu og framgang verkefna Samgöngusáttmálans. Fundurinn fer fram í S

Fossvogsbrú.
Fossvogsbrú.

Betri samgöngur og Vegagerðin í samstarfi við Kópavogsbæ efna til kynningarfundar um stöðu og framgang verkefna Samgöngusáttmálans. Íbúar í Kópavogi eru hvattir til að mæta og kynna sér sáttmálann. Betri og greiðari samgöngur á höfuðborgarsvæðinu eru hagsmunamál okkar allra.

Fundurinn fer fram í Salnum þriðjudaginn 20.maí og hefst klukkan 17.00.

Dagskrá fundar:

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, opnar fundinn. ​ ​ „Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins" Þorsteinn R. Hermannsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Betri samgangna. ​ ​ „Stofnvegir, stokkar, göng og ljósastýring" Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Höfuðborgarsvæðisins hjá Vegagerðinni. ​ ​ „Borgarlínan - hágæða almenningssamgöngukerfi" Atli Björn Levy, forstöðumaður Verkefnastofu Borgarlínunnar. ​

„Nýtt leiðakerfi" Ragnheiður Einarsdóttir, deildarstjóri skipulags- og leiðakerfis Strætó.​ ​ „100 km af hjóla- og göngustígum" Katrín Halldórsdóttir, forstöðumaður hjóla- og göngustíga hjá Betri samgöngum.​