Beint í efni
Til baka í yfirlit

Leið­bein­ingar til íbúa vegna fugl­aflensu­far­ald­urs

Heilbrigðiseftirlitið hefur samið við Dýraþjónustu Reykjavíkur um að móttaka tilkynningar um dauða fugla á svæði heilbrigðiseftirlits Gar

Dauðar gæsir í Vatnsmýri sem Dýraþjónustan sótti. Mynd/Reykjavíkurborg.
Dauðar gæsir í Vatnsmýri sem Dýraþjónustan sótti. Mynd/Reykjavíkurborg.

Heilbrigðiseftirlitið hefur samið við Dýraþjónustu Reykjavíkur um að móttaka tilkynningar um dauða fugla á svæði heilbrigðiseftirlits Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, en Dýraþjónusta Reykjavíkur er með meindýraeyða á sínum snærum til að takast á við þessi verkefni.

Fólk beðið að láta vita af veikum eða dauðum fuglum

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu sem verða varir við dauða eða veika fugla eru beðnir um að meðhöndla þá ekki heldur hafa tafarlaust samband við Dýraþjónustuna.

Gefa þarf góða lýsingu á staðsetningu fuglanna og ef mögulegt er, senda myndir. Ef fólk verður vart við fugla í vanda eða dauða fugla utan þjónustutíma Dýraþjónustunnar er það beðið um að hafa samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.

Hægt er að hringja í Dýraþjónustuna frá kl. 9-21 á virkum dögum og kl. 9-17 um helgar í síma 822-7820 eða senda tölvupóst á netfangið dyr@reykjavik.is .

Passa vel upp á heimilisketti og hunda Dýraþjónusta Reykjavíkur tekur undir ráðgjöf frá dýralæknum og sérfræðingum Matvælastofnunar að halda heimilisköttum inni á meðan þessi skæða inflúensa gengur yfir en hún er bráðsmitandi og getur borist í ketti líkt og fugla. Ef viðra þarf kettina er mælt með að hafa þá í taumi. Þá er þeim tilmælum beint til hundaeigenda að gæta þess að hundar þeirra fari ekki í hræ af fuglum þótt engin staðfest smit yfir í hunda séu þekkt á þessum tímapunkti. Mikilvægt hlutverk Dýraþjónustunnar Starfsfólk Dýraþjónustunnar í Reykjavík hefur unnið þétt með sérfræðingum hjá Matvælastofnun undanfarna mánuði. Í síðasta mánuði hafa þau meðal annars tekið um 40 blóðsýni af fuglum sem grunur leikur á að hafi smitast af þessari skæðu fuglainflúensu. Síðustu daga hafa komið fjölmargar tilkynningar um veika eða dauða fugla sem þau hafa sinnt.