Beint í efni
Til baka í yfirlit

Lista­há­tíð Vatns­drop­ans

Hlaðvarp um dýr í útrýmingarhættu, ljóðabók náttúrunnar og listræn plokkáskorun er á meðal þess sem má upplifa á spennandi listahátíð sem haldin verður lau

Listahátíð Vatnsdropans fer fram 23. apríl 2022.
Listahátíð Vatnsdropans fer fram 23. apríl 2022.

Hlaðvarp um dýr í útrýmingarhættu, ljóðabók náttúrunnar og listræn plokkáskorun er á meðal þess sem má upplifa á spennandi listahátíð sem haldin verður laugardaginn 23.apríl í Menningarhúsunum í Kópavogi. Hátíðin er unnin af grunnskólabörnum í Kópavogi sem hafa undanfarna mánuði verið þátttakendur í verkefninu Vatnsdropinn sem er samstarfsverkefni á milli Kópavogsbæjar og þriggja norrænna barnamenningarstofnana sem tengjast höfundaverki Astrid Lindgren, Tove Jansson og H. C. Andersen.

Breytum efnivið í ævintýraverur Börnin hafa sótt vikulegar smiðjur og fengið innblástur og kennslu úr ýmsum áttum. Á Vatnsdropahátíðinni munu þau sýna ljósmyndir, ljóð, teikningar, bókverk og fleira á sýningum sem teygja sig yfir Bókasafn Kópavogs, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Gerðarsafn. Samhliða sýningum barnanna verður boðið upp á spennandi smiðjur þar sem hægt verður að fræðast um lífræna ræktun og lífríki Íslands, breyta ónýtum húsgögnum í ævintýrapersónur og furðuskepnur og meira og fleira.

Hátíðin stendur yfir frá klukkan 12 - 15 . Tónleikar í Salnum eru kl. 13.00.

NÁNAR:

SÝNINGAR ÓBOÐINN GESTUR - GERÐARSAFN Ljósmyndasýning og listræn plokkáskorun.

LJÓÐABÓK NÁTTÚRUNNAR - BÓKASAFN Lifandi bókverk.

DROPINN - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Hlaðvarp um lífríki Íslands og dýr í útrýmingarhættu.

MATARGAT - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Viltu rækta mat heima? Byrjaðu hér!

SMIÐJUR

SKÚLPTÚRSMIÐJA - ÚTISVÆÐI Umbreytum ónýtum húsgögnum, afsöguðum greinum og afgangstimbri í ævintýrapersónur og furðuskepnur.

MATARGAT - ÚTISVÆÐI Hvaðan kemur maturinn okkar? Hvað getum við ræktað heima, í garðinum eða stofuglugganum? Forvitnileg smiðja um hringrás lífrænnar ræktunar þar sem við sáum fræjum og smökkum.

FUGLASMIÐJA - BÓKASAFN Nýtum fundin efni til að föndra fugla og fræðumst um íslenskt lífríki í leiðinni.

LAUFSKRÚÐ TRJÁNNA -NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Rannsökum blaðför og fræðumst um tré í skemmtilegri uppgötvunarsmiðju.

FANN ÉG Á FJALLI -NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Skreytum og málum okkar eigin töfrasteina.

HÉR Á ÉG HEIMA - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Hver býr hvar? Finnum búsvæði dýra og plantna í íslenskri náttúru.

SÝNINGAR

ÓBOÐINN GESTUR - GERÐARSAFN Ljósmyndasýning og listræn plokkáskorun.

LJÓÐABÓK NÁTTÚRUNNAR - BÓKASAFN Lifandi bókverk.

DROPINN - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Hlaðvarp um lífríki Íslands og dýr í útrýmingarhættu.

MATARGAT - NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA Viltu rækta mat heima? Byrjaðu hér!

TÓNLEIKAR

JAZZBADASS - SALURINN KL. 13:00 Jazzsögustund fyrir fjölskyldur, fróðleiksmolar, landafræði og spurningakeppni þar sem sigurvegarinn er krýndur jazzbadass!

Vatnsdropinn listahátíð er unnin af ungum sýningarstjórum, grunnskólabörnum í Kópavogi. Markmiðið með hátíðinni er að gera börn að virkum þátttakendum í starfi þeirra menningarstofnana sem að Vatnsdropanum standa.

Ungir sýningarstjórir í Kópavogi 2022 eru: Agla Björk Egilsdóttir Ágústa Lillý Valdimarsdóttir Birta Mjöll Birgisdóttir Brynja S. Jóhannsdóttir Elena Ást Einarsdóttir Friðrika Eik Z. Ragnars Héðinn Halldórsson Inga Bríet Valberg Karen Sól Heiðarsdóttir Lóa Arias Matthildur Daníelsdóttir Sigurlín Viðarsdóttir Sóllilja Þórðardóttir Þóra Sif Óskarsdóttir