Beint í efni
Til baka í yfirlit

Loka­há­tíð Skap­andi sum­ar­starfa hald­in í 19. skipti

Skapandi Sumarstörf í Kópavogi veita ungu listafólki á aldrinum 20-26 ára tækifæri til að vinna að eigin listsköpun og hefur það reynst mikilvægur stökkpal

Birta Ásmundsdóttir og Inga María Olsen skipa danshópinn Rólegan Æsing.
Birta Ásmundsdóttir og Inga María Olsen skipa danshópinn Rólegan Æsing.

Lokahátíð Skapandi Sumarstarfa í Kópavogi fór fram í Salnum miðvikudag 7. ágúst. Í ár er 19. sumarið sem ungt listafólk starfar á vegum Kópavogsbæjar í skapandi verkefnum.

Skapandi Sumarstörf í Kópavogi veita ungu listafólki á aldrinum 20-26 ára tækifæri til að vinna að eigin listsköpun og hefur það reynst mikilvægur stökkpallur fyrir margt af efnilegasta listafólki landsins. Í sumar eru starfrækt 11 spennandi og ólík verkefni en að baki þeim standa 26 ungir listamenn úr mismunandi listgreinum.

Hátíðin var vel sótt og var þetta í annað skipti sem listafólki Skapandi Sumarstarfa bauðst að sýna afrakstur sumarsins í Salnum en þau hafa verið í sérstöku samstarfi við Menningarhúsin í Kópavogi og hafa boðið upp á fjölbreytta viðburðadagskrá í allt sumar.

Dagskráin stóð yfir frá 19.30 - 22.00 en sýningin hófst á skemmtilegri dansuppákomu með danshópnum Rólegan Æsing og lauk með ljúfum tónum sem hljómsveitin Amor Vincit Omnia flutti. Listamannabásum var komið fyrir í forsalnum þar sem gestir gátu skoðað bæklinga, myndlista- og myndbandsverk áður en gengið var inn í sal. Meðal atriða sem komu fram voru brot úr leikritum, stuttmyndir, sketsar og tónlistaratriði.

Facebook síða Skapandi Sumarstarfa í Kópavogi

Instagram síða Skapandi Sumarstarfa í Kópavogi