Miðnæturopnun í Kópavogslaug
Við fögnum haustinu og höfum opið til 23:00 í Kópavogslaug föstudaginn 4. september.

Við fögnum haustinu og höfum opið til 23:00 í Kópavogslaug föstudaginn 4. september.
Í innilauginni verður danstónlist, neonljós og stuð. Í útilauginni verður hugguleg stemning við kertaljós,
Njótum þess að vera saman í öruggu og heilsubætandi umhverfi.
Athugið að vetrarútivistarreglur taka gildi 1. september, verum samtaka og virðum þær.
Börn 12 ára og yngri mega lengst vera úti til 20:00.
13–16 ára börn mega lengst vera úti til 22:00
Öll meðferð áfengis- og vímuefna er stranglega bönnuð.


