Beint í efni
Til baka í yfirlit

Mik­il stemn­ing á Síma­mót­inu

Stærsta fótboltamót landsins, Símamótið, fór fram í Kópavogi helgina 9.-12. júlí. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri ávarpaði stelpurnar.

Setning Símamótsins 2026
Mikil stemning var á setningu Símamótsins 9. júlí.

Stærsta fótboltamót landsins, Símamótið, fór fram í Kópavogi helgina 9.-12. júlí og var þetta 42. mótið í röðinni en mótið var fyrst haldið 1985. Mótið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna ásamt Litla Símamótinu sem haldið er fyrir 8. flokk.

Eins og undanfarin ár fór mótið fram í bæði Fossvogsdal og Kópavogsdal á völlum Breiðabliks. Þá voru spilaðir rúmlega 1600 leikir á mótssvæðinu yfir helgina. Alls tóku um 480 lið frá 43 félögum þátt í mótinu í ár.

Til leiks mættu um 3.200 fótboltastelpur og var mikil stemning, gleði og eftirvænting í loftinu á setningu mótsins á fimmtudaginn síðasta.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri mætti á setningu mótsins og ávarpaði stelpurnar.

Það má með sanni segja að það var mikil stemmning alla helgina í Kópavogi og heppnaðist helgin stórkostlega þrátt fyrir að sólin léti ekki sjá sig. Kópavogur er sannkallaður íþróttabær og aðstaða til fótboltaiðkunar til fyrirmyndar, því er vel við hæfi að stærsta fótboltamót landsins sé í Kópavogi. Til hamingju stelpur með frábært mót!

segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri.