Minningarorð um Guðmund Oddsson
Í upphafi bæjarstjórnarfundar 25. ágúst flutti bæjarstjóri, fyrir hönd bæjarstjórnar, minningarorð um Guðmund Oddsson fyrrverandi bæjarfulltrúa bæjarstjórnar Kópavogs.

Í upphafi bæjarstjórnarfundar 25. ágúst flutti bæjarstjóri, fyrir hönd bæjarstjórnar, minningarorð um Guðmund Oddsson fyrrverandi bæjarfulltrúa bæjarstjórnar Kópavogs og færði aðstandendum þakkir fyrir hans störf í þágu bæjarins.
Bæjarstjórnarfundurinn er fyrsti fundur að loknu sumarleyfi.
Minningarorð
Ágætu bæjarfulltrúar og íbúar sem eru að hlusta
Fyrir hönd bæjarstjórnar Kópavogs langar mig að minnast Guðmundar Oddssonar bæjarfulltrúa Kópavogsbæjar um árabil, en Guðmundur lést 24.júlí síðastliðinn.
Guðmundur lét sannarlega til sín taka í vaxandi bæjarfélagi og setti svip sinn á það í starfi sínu sem kennari og skólastjóri, sem kjörinn fulltrúi og í störfum fyrir íþróttahreyfinguna.
Guðmundur var bæjarfulltrúi Alþýðuflokkinn í tuttugu ár, frá árunum 1978 til 1998 og sat í bæjaráði allt það tímabil auk ýmissa annarra nefnda.
Guðmundur var kennari við Gagnfræðaskólann í Kópavogi, sem síðar varð Víghólaskóli á árunum 1964 til 1984. Frá árinu 1974 var hann yfirkennari skólans. Árið 1984 varð Guðmundur skólastjóri í Þinghólsskóla og gegndi því embætti til ársins 2001 þegar hann varð fyrsti skólastjóri Kársnesskóla sem varð til við sameiningu Þinghóls- og Kársnesskóla.
Guðmundur sat í fjölmörgum stjórnum en hér langar mig sérstaklega að nefna félagsmál sem snúa að íþróttalífi í Kópavogi.
Guðmundur var heiðursbliki, hann var formaður blakdeildar Breiðabliks frá stofnun 1973 til ársins 1979. Þá var hann formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks 1995 til 1997. Hann var öflugur kylfingur og formaður GKG 2006 til 2015 og aftur 2018 til 2022. Mikil uppbygging átti sér stað hjá GKG í formannstíð Guðmundar og meðal annars tekið í notkun nýtt húsnæði golfklúbbsins árið 2015.
Guðmundur var kvæntur Sóleyju Stefánsdóttur verslunareiganda og bjuggu þau alla sína búskapartíð í Kópavogi, lengst af í Fögrubrekku í húsi sem þau byggðu sjálf.
Bæjarstjórn Kópavogs sendir fjölskyldu Guðmundar samúðarkveðju og þakkar fyrir störf hans í þágu bæjarfélagsins.


