Beint í efni
Til baka í yfirlit

Öll tæki úti í snjó­mokstri

Öll snjómoksturstæki eru úti núna og er bæði verið að moka götur og stíga og hófst mokstur kl 04.00 í morgun. Vel gekk eftir aðstæðum um helgina.

Götur hreinsaðar 19.desember 2022.
Götur hreinsaðar 19.desember 2022.

Öll snjómoksturstæki eru úti núna og er bæði verið að moka götur og stíga og hófst mokstur kl 04.00 í morgun. Vel gekk eftir aðstæðum um helgina. Öll tæki, 20 talsins, voru úti bæði laugardag og sunnudag, á laugardag frá kl. 04.00 og á sunnudegi frá 05.00.

Fjölmargar ábendingar hafa borist frá íbúum, unnið er eftir ákveðinni áætlun sem hægt er að nálgast á vef bæjarins. Í forgangi eru stofn- og tengibrautir og hjólastígar. Hreinsun íbúagatna er hafin en það mun taka nokkra daga að fara inn í allar götur bæjarins.

Á vefnum er hægt að nálgast upplýsingar um vetrarþjónustu í Kópavogi, sjá snjómokstu og hálkuvarnir Á kortavef Kópavogs , er hægt að nálgast kort af vetrarþjónustuleiðum með að velja í valglugga -þjónusta->vetrarþjónusta og svo haka í viðeigandi reiti yfir hvaða leiðir óskað er eftir að sjá.

Vakin er athygli á reitnum -framvinda vetrarþjónustu þar sem hægt er að sjá hvaða leiðir hafa verið ruddar síðustu 6 klukkustundirnar.

Ekki eru allir stígar ruddir eða hálkuvarðir heldur einungis þeir sem metnir eru fjölfarnir eru mikilvægir.