Munum leiðina: Vitundarvakning Alzheimer samtakanna
Fjólublár bekkur hefur verið settur niður á Kársnesi í tengslum við vitundarvakningu Alzheimer samtakanna, Munum leiðina.

Fjólublár bekkur hefur verið settur niður á Kársnesi í tengslum við vitundarvakningu Alzheimer samtakanna, Munum leiðina. Fjólublár er alþjóðlegur litur Alzheimer sjúkdómsins og annarra heilabilunarsjúkdóma.
Settir hafa verið niður fjólubláir bekkir á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu
- Kópavogsbær - bekkur staðsettur á Kársnesi
- Seltjarnarnes - bekkur staðsettur við Gróttu
- Reykjavíkurborg - bekkir við Reykjavíkurflugvöll og við göngubrúnna innst í Fossvogi
- Garðabær - bekkur við Sjáland
- Hafnarfjörður - bekkur gömlu sundlaugina í Hafnarfirði.
Allir bekkirnir eiga þeir það sameiginlegt að standa við sjávarsíðuna með fallegu útsýni en saman mynda þeir einnig skemmtilega leið í gegnum öll þessi sveitarfélög.
21 september er alþjóðlegur dagur heilabilunar og er þetta liður í vitundarvakningu Alzheimersamtakanna á Íslandi um málaflokkinn sem ber yfirskriftina Munum leiðina. Á bekkjunum er QR kóði sem hægt er að skanna og styrkja um leið samtökin. Hvetjum fólk til að taka fallegar og skemmtilegar myndir af sér á þessum fallegum bekkjum eða bara að setjast niður og njóta útsýnisins.


