Beint í efni
Til baka í yfirlit

Mynd­band um fram­tíð­ar­sýn Kárs­ness

Framtíðarsýn fyrir vestanvert Kársness er viðfangsefni nýs myndbands sem unnið hefur verið fyrir Kópavogsbæ.

Vestanvert Kársnes
Mynd úr Rammahluta Aðalskipulags fyrir vestanvert Kársnes.

Framtíðarsýn fyrir vestanvert Kársness er viðfangsefni nýs myndbands sem unnið hefur verið fyrir Kópavogsbæ. Auður Dagný Kristinsdóttir skipulagsfulltrúi Kópavogsbæjar, Halldóra Hreggviðsdóttir ráðgjafi hjá Alta og Jóhann Jökull Ásmundsson íbúi á Kársnesi fjalla um svæðið, þátttöku íbúa í skipulagsvinnu og fyrirhuguð áform á Kársnesi.

Leiðarljósið í framtíðarsýn Kársness er að þar verði að búa, starfa og heimsækja hverfið. Það er sérlega vel staðsett á höfuðborgarsvæðinu og verður áhersla á enn betri samgöngur og góða þjónustu. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Kársnesi undanfarin ár en um leið leitast við að varðveita staðaranda, fjölbreytta byggð og tengsl við náttúru.

Myndbandið er unnið í tengslum við rammahluta aðalskipulags fyrir vestanvert Kársness sem er hefur verið samþykktur af bæjarstjórn Kópavogs og er nú í staðfestingarferli.

Íbúar og önnur áhugasöm eru hvattir til að skoða myndbandið og kynna sér skipulagið.

Rammahluti aðalskipulags