Norrænt kóramót haldið í Kópavogi
Norbusang er norrænt kóramót fyrir börn og ungmenni á aldrinum 9–25 ára, sem haldið er árlega í einu Norðurlandanna. Í ár verður mótið haldið í Kópavogi.

Norbusang er norrænt kóramót fyrir börn og ungmenni á aldrinum 9–25 ára, sem haldið er árlega í einu Norðurlandanna. Í ár verður mótið haldið í Kópavogi.
Miðvikudaginn 13. maí kl. 19:00 mun skólahljómsveit Kópavogs mun leiða skrúðgöngu frá Barnaskóla Kársness yfir á túnið við menningarhúsin þar sem hátíðin verður sett og leika nokkur lög en það er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs setur hátíðina.
UngíKór - Landsamtök barna- og ungmennakóra vinna að skipulagningu mótsins. Um 300 börn og ungmenni frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, og vonandi Færeyjum og Grænlandi taka þátt í kóramótinu. Dagskrá mótsins samanstendur af vinnusmiðjum, tónleikum, kóræfingum og samveru. Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast íslenskum tónlitstararfi og læra og flytja íslenska tónlist.
Fleiri viðburðir eru í tenglsum við hátíðina en föstudaginn 15. maí munu kórarnir kynna sig og kynnast hver öðrum þegar Kópavogslaug fyllist af söng. Þátttakendur koma sér fyrir í innilauginni, en kórsöngur mun óma um og yfir heitu pottana þetta föstudagskvöld frá kl. 19:30 - 20:30.
Laugardaginn 16. maí verða lokatónleikar Norbusang haldnir í Digraneskirkju kl. 16:00, en frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands mun sækja tónleikana og heiðra söngvarana með nærveru sinni.
Kórsöngvararnir munu syngja lög sem hafa verið sungin og í ýmsum tilfellum samin á tónleikunum, auk þess sem tónverkið Valhoppar vorið eftir Tryggva M. Baldvinsson verður frumflutt, en það var samið sérstaklega fyrir kóramótið.
Hátíðin er styrkt af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar
Aðgangur er því ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.


