Beint í efni
Til baka í yfirlit

Ný Kópa­vogs­saga kom­in út

Vill tattúvera Kópavogskirkju við hjartastað

Ásgeir Þór Jónsson er viðmælandi Þórdísar Lilju Gunnarsdóttur í nýjustu Kópavogssögunni.

Villingurinn Ásgeir Þór Jónsson er maðurinn á bak við Mossley, einn vinsælasta veitinga- og hverfispöbb Kópavogs. Hann er nýkominn með nasasjón af bæjarpólitíkinni og gantast með að kalla sig fógetann. Geiri er maður margra hatta; hann er sælkerakokkur sem fann ástina í Danmörku, listmálari sem ætlar að hafa legsteininn sinn í garðinum, mannglöggur sálfræðingur við barborðið og Norðurlandameistari í fimleikum, sem sér eftir því að hafa lamið sig út úr Gerplu.

Hér má lesa viðtalið í heild sinni