Ný viðmið um notkun gervigreindar í grunnskólum
Ný samræmd viðmið um notkun gervigreindar fyrir starfsfólk og nemendur verða innleidd í grunnskólum Kópavogs við upphaf skólaársins 2026–2027.

Ný samræmd viðmið um notkun gervigreindar fyrir starfsfólk og nemendur verða innleidd í grunnskólum Kópavogs við upphaf skólaársins 2026–2027. Markmiðið er að styðja við ábyrga, örugga og faglega nýtingu gervigreindar í námi og starfi.
Viðmiðin eru afrakstur samvinnu sérfræðinga á Menntasviði og Skrifstofu umbóta og þróunar. Við mótun þeirra var tekið mið af stefnu Kópavogsbæjar um notkun gervigreindar og horft til þróunar og stefnumótunar þessa efnis á Norðurlöndunum. Áhersla var lögð á að skapa skýran og hagnýtan ramma sem tekur mið af bæði kennslufræðilegum og tæknilegum þáttum.
Viðmið voru mótuð
- fyrir starfsfólk, með áherslu á ábyrgð, fagmennsku og meðferð gagna,
- fyrir nemendur, með skýrum leiðbeiningum um notkun gervigreindar í námi.
Útgáfa viðmiðanna markar upphaf markvissrar innleiðingar sem byggir á þróunarverkefninu Gervigreind – uppspretta nýrra tækifæra? sem hlaut styrk úr Sprotasjóði 2026 til tveggja ára. Verkefnið nær til allra grunnskóla Kópavogs og miðar að því að efla stafræna hæfni og undirbúa skólasamfélagið fyrir breytt námsumhverfi.
Eftir að allir kennarar hafa fengið grunnfræðslu og prófað að útbúa verkefni með aðstoð gervigreindar, fá þeir þjálfun í að leiðsegja nemendum í notkun gervigreindar í verkefnavinnu fyrst og fremst í 8. til 10. Bekk. Fræðsla um gervigreind hefst þó í 6. bekk undir námsþættinum stafræn borgaravitund undir greinasviði upplýsingatækni í aðalnámskrá grunnskóla.


