Nýr kaldur pottur í Kópavogslaug
Nýr kaldur pottur er kominn í gagnið í Sundlaug Kópavogs. Aðkoman að pottinum er góð en hægt er að ganga í hann frá tveimur hliðum. Hitastiginu í kalda pottinum er haldið í 8-12 gráðum.

Nýi kaldi potturinn svarar kalli bæjarbúa um bætta aðstöðu fyrir þau sem stunda köld böð. Um er að ræða mikla uppfærslu en potturinn rúmar mun fleiri en sá gamli auk þess sem aðgengi er stórbætt.

Undanfarin ár hafa kaldir pottar áunnið sér mikilla vinsælda hér á landi og þykir sumum kalda dýfan vera ómissandi hluti af sundferðinni. Talið er að köld böð hafi heilsubætandi áhrif, bæði líkamleg og andleg.

Íbúar og aðrir gestir sundlauga í Kópavogi mega vænta fleiri nýjunga á næstunni en um þessar mundir er verið að byggja nýja innrauða gufu og þurrgufu í Salalaug.


