Beint í efni
Til baka í yfirlit

Opið fyr­ir um­sókn­ir í Tí­brá

Opnað hefur verið fyrir innsendingar umsókna í tónleikaröðina Tíbrá í Salnum fyrir tónleikaárið 2025-2026.

Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri …
Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins.

Opnað hefur verið fyrir innsendingar umsókna í tónleikaröðina Tíbrá í Salnum fyrir tónleikaárið 2025-2026.

Tónleikaröðin Tíbrá hefur fest sig í sessi hjá tónlistarunnendum sem ómissandi hluti af klassískri tónlistarsenu landsins. Með Tíbrá leitast Salurinn við að bjóða upp á lifandi tónlistarflutning þar sem hefðbundnum klassískum tónleikum er teflt saman við tilraunir, nýja nálgun og jafnvel ögrun við tónleikaformið.

Við val á verkefnum er sérstaklega horft til nýsköpunar og frumlegrar nálgunar á klassískt höfundarverk.

Sækja um

Umsóknarfrestur er til og með 16. febrúar 2025. Sótt er um í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar.