Beint í efni
Til baka í yfirlit

Opið hús GAJA

Opið hús er í GAJU sumardaginn fyrsta. Gestir geta náð sér í moltu og þá er boðið upp á fræðslu.

GAJA býður í heimsókn sumardaginn fyrsta.
GAJA býður í heimsókn sumardaginn fyrsta.

Opið hús er í GAJU, Álfsnesi 162, sumardaginn fyrsta. Gestir geta náð sér í moltu og þá er boðið upp á fræðslu.

Tilkynning Sorpu:

"Við fögnum sumardeginum fyrsta og um leið fyrstu uppskerunni af næringarríkri moltu og bjóðum í opið hús í GAJU sumardaginn fyrsta, þann 25. apríl. Þetta er spennandi tækifæri til að forvitnast um ferðalag matarleifanna um jarðgerðarstöðina en á síðasta ári flokkuðu íbúar höfuðborgarsvæðisins og nágrennis um 10.500 tonn af lífrænum úrgangi - það er ekkert smá vel gert!

D A G S K R Á 11:00-15:00

Öll velkomin að mæta með kerru, fötu, eða fjölnota poka og ná í moltu fyrir vorverkin í garðinum, endurgjaldslaust! Leiðsögn um stöðina á hálftíma fresti Stjörnu Sævar verður með fræðslu fyrir yngsta fólkið - hefst kl. 13.00 Sérfræðingar frá Grasagarði Reykjavíkur veita fræðslu um moltu

Boðið verður upp á pylsur og gos meðan birgðir endast*

Sjá viðburð á Facebook.